6-T er ekkert spé

við erum best ÓJÉ

31.01.2009 01:47:59 / sjottit

Enn eitt kríli á leiðinni!!!

Já frést hefur að GUÐRÚN sé komin með barn í bumbu!

Til hamingju með það Guðrún og Viðar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 12:44:20 / sjottit

Nýtt kríli í 6-T hópinn!

Það var glöggt auga Jólastrympunnar (Helgu Þóru) sem tók eftir því að móðir Evu Hrannar, þátttakandi í Hæðinni, væri orðin amma!! Til lukku Eva Hrönn með litla krílið! :d Kveðja, Maja

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 17:06:51 / sjottit

Hvað er málið með að mæta snemma?!

Já maður spyr sig, held að bekkurinn okkar ætli bráðlega að fara slá met í stundvísi... eða þannig.

Það muna margir eftir því þegar hún Inga Þyrí mætti viku of snemma í partý til Evu Hrannar... og hvað haldiði að hafi gerst núna?

Ég hringi í Mæju til að ath hvort að fólk sé nokkuð búið að pannta leigubíl, nenni nú engan vegin að koma á staðin ef allir væru að fara - líka gott að fá nánari leiðbeiningar til að komast á staðinn... ÚBBS Mæja komin í rúmmið að fara sofa! Já ég var 20 klst. of snemma á ferðinni!

Þetta er nú ekki eðlilegt hahah!!! :haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:
:lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol:

En þetta endaði nú bara þannig að ég fór bara í bæinn og keypti mér einn mojito með vinkonu minni - enda átti ég það bara alveg skilið, búin að dressa mig ægilega vel upp og komin með "pössun"

Vonandi skemtuð þið ykkur vel og TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MÆJA

og gleðilegt nýtt ár - Íris :lol::lol::lol::lol::lol: - ps. vonandi kemst ég á næsta ári í hið árlega jólapartý ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 02:13:27 / sjottit

AMMMMMMMMLIIIII

Inga skipulagða ætlar að bjóða í geðveikt partý með 2 daga fyrirvara :S alltaf með góðan fyrirvara á öllu...

 Allavega, partýið verður kl 20 á laugardaginn á Gauknum

Þemað er nærbuxur og það þýðir að ekki er nóg að vera í nærbuxum heldur verður að vera í þeim utanyfir svo vel megi sjá...

Það verður súpergeðveiktmegagaman og að sjálfsögðu ölvun geldir miðann :!:

Vona að þið sjáið þetta tímanlega,,, annars sjáumst við bara hjá Mæju

 

knús

Inga 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 22:54:37 / sjottit

og hvað næst? Sjitt happens!

Tékk ðiss át!

P.S. Wannabe 6-T-ingum (*hóst Halli*) einnig boðið.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 17:13:47 / sjottit

Já lítill drengur var það :)

Ég tilkynni hérmeð stolt að ég er orðin MÓÐIR og á einn lítinn dreng, mjög svo þægann... töluvert mikið þægari en drengirnir sem voru forðum í 6-T... ;)

Hann fæddist 11. september og var heilar 18 merkur og var 54 cm þannig að hann er engin smásmíði. Skelli inn einni mynd í tilefni dagsins.

Bestu kveðjur og ég vonast ennþá eftir að heyra slúður... þar sem ég kemst sennilega ekki á kaffihúsið!

Já myndin er hér til hliðar á síðunni.


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 21:51:13 / sjottit

Myndir

At last, já ég var með myndavél í þessu partýi og tók einhverjar myndir. Ég er búin að smalla þeim inn þarna. Því miður er ég á mörgum af þeim en það á að vera allavega 1 mynd af hverjum og einum í partýinu hjá Arnari. Ég held að Arnar og Bestla eigi skilið hrós fyrir þetta partý og við öll fyrir að vera gjörsamlega hammered...

Bis leiter

Sía


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 14:26:05 / sjottit

Skúbb

Nýjasta skúbbið er að Íris hafi eignast lítinn prins í dag :o jibbýjei! 

heimild

Innilegar hamingjuóskir frá okkur öllum :lol:

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 19:45:09 / sjottit

café?

Takk fyrir síðast strumparnir mínir!

 Nokkrir mætir sjettuT-ingar voru að stinga upp á því að hittast yfir eins og einum kaffibolla eða jafnvel einum öl á sunnudagskvöld.

Er ekki tilvalið að hamra járnið meðan það er heitt, ná slúðrinu áður en fólk fer að leyfa sér að gleyma því, komast að því hver drapst, hver kyssti hvern, hver ældi hvar, hver kýldi hvern og hver fór heim með hverjum á laugardagskvöldið??

Fjölmennum á Oliver kl. 20 á sunnudagskvöldið - Sýnum þessu liði hver er alltaf með bestu mætinguna ójá!

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 17:50:01 / sjottit

Slúðrið???

Sæl elsku vinir og vandamenn :)

Mér þykir mjög leitt að hafa ekki verið viðstödd þennan merka atburð á laugardaginn var en ég var með ykkur í anda! Ég er að bíða eftir frumburði mínum þessa dagana og ekki vel partýhæf... En lofa að vera með næst þegar þið hittist ;)

En hvað með slúðrið? Það mætti einhver góðhjartaður skrá niður punkta svo ég fái kannski pínu fíling.

Kveðja í bili - Íris -


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 13:37:49 / sjottit

tilkynning

 

 

Heimsótti parið Arnar og Benna í gær. Þeir eru sætir saman. Tilkynntu mér að mæting yrði að vera kl 17:00 Í STAÐ 16:30

 

 

Mæting 17:00

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 16:40:58 / sjottit

Dagskrá laugardagsins!

 

 

 

Háttvirtu sjöttuT-ingar

 

Skemmtinefnd hefur komist að niðurstöðu.

 

Meginþema laugardagsins verður Drykkja og var ákveðið að flækja það ekki frekar með óþarfa krúsídúllum og tilheyrandi kostnaði.

 

Mæting er kl. 16:30 hjá Arnari Bentssyni að Gvendargeisla 12, 113 Reykjavík (a.k.a. Grafarholt)

 

Í beinu framhaldi hefst áfengisdrykkja á mjög háu plani. Í boðinu verður hvítvín, bjór og coctail a la Maja Goal að ógleymdum nokkrum Opal staupum. Eins verður að staðnum eitthvað nasl til að grípa í. Er þetta allt taken care of þar sem hluti af aðgangeyrinum var settur til hliðar í þessum tilgangi.

 

Rétt er þó að geta þess að ef menn ætla sér tapa sér algjörlega í drykkju eða eru með leiðindar drykkju-sérþarfir er ákjósanlegt að hafa eitthvað með sér í poka.

 

Hjá Arnari verður setið að drykkju og almennu catching up spjalli til kl. 20:00 en þá koma nokkrir leigubílar að sækja okkur og skutla okkur í Víðidalinn góða. Allar tillögur að góðu sprelli hjá Arnari eru vel þegnar og hvetjum við fólk til að hrista aðeins upp í hlutunum.

 

Þegar í Víðidalinn er komið tekur á móti okkur stór og stæðilegur dyravörður sem mun einungis veita fólki inngöngu gegn framvísun aðgöngumiða sem Guðbjörg mun algjörlega halda utan um, enda ætlar hún að vera edrú og sjá um þetta allt fyrir okkur....var þaggi Guðbjörg?

 

Þegar inn er komið fá svo allir afhentan bjór eða hvítvín ásamt Opal staupi íhaaa.

 

Á þessum tímapunkti verða garnir okkar sjöttuT-inga án efa farnar að gaula, að því gefnu að við munum enn standa í lappirnar, en það er óþarfi að örvænta því á móti okkur mun taka stórglæsilegt pinnamats-hlaðborð að hætti hússins.

 

Það sem af er kvöldinu er basically bara freestyle – mikið drukkið, dansað, klipið í rassa og fleira í þeim dúr.

 

 

Finnum unglinginn, verzlinginn og villta sjöttaT-inginn sem ég veit að blundar í okkur öllum og tryllum lýðinn!

  

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 10:50:37 / sjottit

1. fundur skemmtinefndar

 

Hæ Allir

 Fundur skemmtinefndar verður haldin á miðvikudag kl 20:00 á Oliver. Hugmyndafullir og orkusamir 6-téingar óskast.

 Dagskrá fundar: Skipuleggja dagskrá laugardagsins.

Látið vita þið sem ætlið að mæta

 kveðja,
Guðbjörg Birna


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 11:17:54 / sjottit

6-T á góðri stundu

Linkaði myndir af síðasta 6-T partíi sem Íris tók. Linkurinn er hér til vinstri.

 


Flestir þekkja þetta sem partíið þar sem Benni fór gjörsamlega yfir um... ekkert nema gott um það að segja!


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 10:30:25 / sjottit

Eitt og annað

Jæja krakkar

 1. Hvar er Ingibjörg ????

2. Kári er ekki búin að borga, fékk frá honum e-mail þar sem hann sagði:

     " ég náði bara ekki orði að því sem stóð í þessu, hvaða reunion er þetta og hvenar er það?"

 Ég sagði honum að hann mætti hringja í mig anytime, ekkert heyrst frá honum ennþá.

 3. Íris, Eva Hrönn, Svava koma ekki. Barn í bumbu, fjölskylduthing og útlönd eru helstu ástæður fjarveru. Ég veit að Eva Hrönn kemur til Arnars og var einnig að vona að Íris myndi láta sjá sig. Við munum drekka skot til heiðurs Svövu.

4. Viggó, þú átt eftir að borga

 Annars lýst mér vel á umræður um dagsskemtun. Var að hugsa um að koma af stað nefnd sem myndi bara ákveða þetta. Þeir sem vilja vera í þessari mjög svo svölu nefnd mega bara sjálfskipa sig í hana. Ég er samt formaður með neitunarvald ;)

 Þessi fræga nefnd mun hittast í bjór snemma í næstu viku. Nánari tímasetning síðar.

 

Kveðja Guðbjörg


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5